Ef það er verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður á þeim tíma sem athöfnin fer fram.
Ef það er engin verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður strax eftir að viðburðinum lýkur.
Ofangreint gildir óháð því hvort síðar verði einhver dæmdur úr keppni eða breytingar gerðar á úrslitunum (nema ef breytingin er tilkynnt innan 24 stunda frá því að upphaflegt uppgjör fór fram á tilheyrandi markaði til þess að leiðrétta mistök við tilkynningu úrslitanna).
Ef áhöfn/lið eða einstaklingur hefur keppni en klárar hana ekki teljast þau hafa tapað að því gefnu að a.m.k. eitt annað lið eða einstaklingur hafi lokið keppninni. Ef ekkert lið/áhöfn eða einstaklingur lýkur keppninni verða öll veðmál ógild (void).
Ef bátakeppni er aflýst af einhverjum ástæðum eru öll veðmál ógild, nema í þeim tilvikum á markaði sem útkoma veðmála hefur þegar ráðist skilyrðislaust.
Almennar reglur Sportbókar gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum/reglum fyrir sport.