Ef það er verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður á þeim tíma sem athöfnin fer fram.
Ef það er engin verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður strax eftir að viðburðinum lýkur.
Ofangreint gildir óháð því hvort síðar verði einhver dæmdur úr keppni eða breytingar gerðar á úrslitunum (nema ef breytingin er tilkynnt innan 24 stunda frá því að upphaflegt uppgjör fór fram á tilheyrandi markaði til þess að leiðrétta mistök við tilkynningu úrslitanna).
Öll veðmál sem eru flokkuð sem sein skv. upphafstímum á tilheyrandi opinberri heimasíðu verða ógild (e. void).
Ef viðburði er hætt (e. abandoned), honum frestað eða aflýst, verða öll veðmál ógild nema viðburðinum ljúki á sama keppnisstað innan við 48 stundum frá því að honum átti upphaflega að ljúka samkvæmt auglýstri dagskrá.
Beinir markaðir tengjast sigurvegaranum í heildarviðburðinum en ekki í einstökum undanrásum eða riðlum.
Niðurstöður verða ákvarðaðar í samræmi við opinber úrslit tilheyrandi íþróttasambands/yfirvalds. Ef annar eða báðir keppendur komast ekki í úrslit verður sigurvegarinn úrskurðaður sem sá keppandi sem komst lengst áfram eftir umferðum og ef það dugar ekki til þá eftir þeim tíma sem náðist í umferðinni sem þeir voru báðir slegnir út í. Öll veðmál eru ógild ef einhverjum keppanda í viðureignar-/hópveðmáli tekst ekki að keppa.
Almennar reglur skiptimarkaðarins og markaðsupplýsingarnar (e. Market Information) gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum. Ef eitthvað misræmi er á milli sértæku íþróttareglnanna og almennra reglna skiptimarkaðarins skulu sértæku íþróttareglurnar vera í forgangi. Ef eitthvað misræmi er á milli markaðsupplýsinganna og annað hvort almennra reglna skiptimarkaðarins eða sértæku íþróttareglnanna, skulu markaðsupplýsingarnar vera í forgangi.
Kíktu hér til að skoða almennu reglur skiptimarkaðarins.