pokercasinosports

Mótorsport

Almennt

Ef það er verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður á þeim tíma sem athöfnin fer fram.

Ef það er engin verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður strax eftir að viðburðinum lýkur.

Ofangreint gildir óháð því hvort síðar verði einhver dæmdur úr keppni eða breytingar gerðar á úrslitunum (nema ef breytingin er tilkynnt innan 24 stunda frá því að upphaflegt uppgjör fór fram á tilheyrandi markaði til þess að leiðrétta mistök við tilkynningu úrslitanna).

Ef breyting verður á áður auglýstum keppnisstað samkvæmt dagskrá eftir að markaði hefur verið hlaðið upp eru öll veðmál ógild.

Leik hætt, aflýsingar og frestanir

Ef keppni er hætt (e. abandoned) og engum opinberum úrslitum er lýst yfir verða öll veðmál á þá keppni ógild nema fyrir markaði sem hafa þegar ráðist skilyrðislaust.

Í speedway-akstri verða veðmál ógild ef allir riðlar á dagskrá eða keppnir í móti eða viðureign er ekki lokið, nema fyrir markaði sem hafa þegar ráðist skilyrðislaust.

Markaðir á einvígi (e. head-to-head)

Ökumaður sem endar fremstur eða klárar flestan fjölda hringja telst vera sigurvegarinn.

 

Almennar reglur skiptimarkaðarins og markaðsupplýsingarnar (e. Market Information) gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum. Ef eitthvað misræmi er á milli sértæku íþróttareglnanna og almennra reglna skiptimarkaðarins skulu sértæku íþróttareglurnar vera í forgangi. Ef eitthvað misræmi er á milli markaðsupplýsinganna og annað hvort almennra reglna skiptimarkaðarins eða sértæku íþróttareglnanna, skulu markaðsupplýsingarnar vera í forgangi.

Kíktu hér til að skoða almennu reglur skiptimarkaðarins.