Ef það er verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður á þeim tíma sem athöfnin fer fram.
Ef það er engin verðlaunaathöfn verða veðmál gerð upp í samræmi við opinber úrslit íþróttayfirvalds sem þar ræður strax eftir að viðburðinum lýkur.
Ofangreint gildir óháð því hvort síðar verði einhver dæmdur úr keppni eða breytingar gerðar á úrslitunum (nema ef breytingin er tilkynnt innan 24 stunda frá því að upphaflegt uppgjör fór fram á tilheyrandi markaði til þess að leiðrétta mistök við tilkynningu úrslitanna).
Veðmál á mót munu einungis standa ef lágmarksfjölda af holum sem eru tilteknar í markaðsupplýsingunum (e. Market Information) hafi verið lokið.
Ef mót/umferð er endurræst aftur frá byrjun eru öll veðmál sem voru lögð undir eftir að opinberum „endatíma“ (e. „off“ time) lýkur ógild, nema á markaði sem hefur þegar lokið á skilyrðislausan hátt, sem munu þá standa. Veðmál á 2 eða 3 bolta verða aðeins ógild ef þau eru jöfnuð að loknum teigtíma tilheyrandi 2 eða 3 bolta.
Ef við stöðvum ekki mótamarkað og aflýsum ójöfnuðum veðmálum á þeim tíma sem er tiltekinn í reglum markaðarins, en markaðurinn færist í spilun (e. In-Play) síðar, verða öll veðmál ógild sem eru jöfnuð frá upphafi spils þann daginn til þess tíma sem markaðurinn er færður í spilun/In-Play.
Ef mót er stytt og við gerum upp mótamarkaðina verða öll veðmál ógild sem eru jöfnuð eftir síðustu umferðina sem klárast.
Ef spilari hefur ekki leik í móti verða veðmál á þann spilara ógild (e. void).
Sérhver spilari sem byrjar mót en dregur sig úr keppni eða er vísað burt úr keppni áður en henni lýkur verður talinn hafa tapað.
Á öllum „To Qualify“-mörkuðum (kemst áfram) í mótum, eru sigurvegarar þeir spilarar sem komast áfram í mótið undir þeim skilmálum sem er lýst í markaðsupplýsingunum, hvort sem þeir keppa í mótinu eða ekki. Veðmál verða gerð upp eftir undankeppnisstigið og allir úrskurðir sem eru gerðir síðar, þar sem keppanda er vísað frá keppni eða breytingar verða á úrslitum, teljast ekki með.
Ef spilari dregur sig úr keppni án þess að slá högg munu, öll verðmál á tengda markaði, þar á meðal á þann spilara, verða ógild.
Ef engum spilara tekst að ljúka tiltekinni umferð af einhverjum ástæðum er sigurvegarinn sá spilari sem er með heildarlægsta skorið að lokinni síðustu umferð á undan.
Takist engum spilara að ljúka fyrstu umferðinni eru öll veðmál ógild.
Ef spilari dregur sig úr keppni án þess að slá högg í þeirri umferð munu öll veðmál á tengda markaði verða ógild.
Ef spilara tekst ekki að ljúka umferð/hring af einhverjum ástæðum öðrum en að hann dragi sig úr keppni eða sé vísað úr leik verða öll veðmál ógild nema á þá markaði sem hafa þegar ráðist skilyrðislaust.
Hver sá spilari sem dregur sig úr keppni eða er vísað þaðan án þess að hafa slegið högg í umferðinni verður talinn hafa tapað, að því gefnu að a.m.k. einn annar spilari ljúki þeirri umferð.
Takist engum spilara að ljúka umferðinni eru öll veðmál ógild.
Veðmál verða upp við lok holunnar og víti eða refsingar sem gætu orðið síðar verða ekki tekin með í reikninginn.
Ef holu er ekki lokið af einhverjum ástæðum eru veðmál á þá holu gerð ógild nema markaðurinn hafi þegar ráðist skilyrðislaust.
Veðmál verða upp við lok holunnar og víti eða refsingar sem gætu orðið síðar verða ekki tekin með í reikninginn.
Ef hola er ekki kláruð vegna þess að spilari eða lið gefur hana, dregur sig úr leik eða er dæmt úr keppni, eru öll veðmál á það lið eða spilara talin vera töpuð.
Ef spilari eða lið sem dregur sig úr keppni eða er vísað þaðan án þess að hafa slegið högg á þá holu, eru veðmál talin hafa tapað, að því gefnu að a.m.k. einn annar spilari ljúki þeirri holu.
Ef annar spilari eða lið leikur ekki högg á holu eru öll veðmál ógild.
Almennar reglur skiptimarkaðarins og markaðsupplýsingarnar (e. Market Information) gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum. Ef eitthvað misræmi er á milli sértæku íþróttareglnanna og almennra reglna skiptimarkaðarins skulu sértæku íþróttareglurnar vera í forgangi. Ef eitthvað misræmi er á milli markaðsupplýsinganna og annað hvort almennra reglna skiptimarkaðarins eða sértæku íþróttareglnanna, skulu markaðsupplýsingarnar vera í forgangi.
Kíktu hér til að skoða almennu reglur skiptimarkaðarins.