Veðmál verða gerð upp miðað við úrslitin, að meðtalinni framlengingu, nema annað sé tekið fram í markaðsupplýsingunum (e. Market Information) eða þar sem markaðurinn hefur þegar ráðist skilyrðislaust.
Ef leikur hefst ekki á auglýstri dagsetningu sem hann átti að hefjast á eru veðmál ógild (e. void).
Ef leikur hefst en síðar er honum hætt eða honum frestað, þá innan þriggja daga frá auglýstri upphafsdagsetningu, (a) a.m.k. 43 mínútur af spilatíma verða að hafa liðið í leik í NBA eða 35 af spilatíma í öðrum leik; eða (b) opinberum úrslitum verður lýst yfir af tilheyrandi íþróttayfirvaldi; annars verða öll úrslit ógild (e. Void), nema á þeim mörkuðum sem hafa þegar ráðist skilyrðislaust. Í þeim tilvikum, ef staðan er jöfn, gilda reglur um jafntefli (e. dead heat rules) um veðmál á peningalínumarkaðina (e. Moneyline market).
Almennar reglur skiptimarkaðarins og markaðsupplýsingarnar (e. Market Information) gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum. Ef eitthvað misræmi er á milli sértæku íþróttareglnanna og almennra reglna skiptimarkaðarins skulu sértæku íþróttareglurnar vera í forgangi. Ef eitthvað misræmi er á milli markaðsupplýsinganna og annað hvort almennra reglna skiptimarkaðarins eða sértæku íþróttareglnanna, skulu markaðsupplýsingarnar vera í forgangi.
Kíktu hér til að skoða almennu reglur skiptimarkaðarins.