pokercasinosports

Amerískur fótbolti

Almennt

Veðmál verða gerð upp miðað við úrslitin, að meðtalinni framlengingu, nema annað sé tekið fram í markaðsupplýsingunum (e. Market Information) eða þar sem markaðurinn hefur þegar ráðist skilyrðislaust.

Ef viðureign lýkur með jafntefli eftir framlengingu verða veðmál á peningalínumarkaði (e. Moneyline market) ógild (e. void).

Leik hætt, aflýsingar og frestanir

Ef viðureign hefst ekki á auglýstri upphafsdagsetningu og er ekki lokið innan þriggja daga frá auglýstri lokadagsetningu, verða öll veðmál ógild (e. void) nema á þá markaði sem þegar hafa ráðist skilyrðislaust.

Ef leikur hefst en síðar er honum hætt eða honum frestað, þá innan þriggja daga frá auglýstri upphafsdagsetningu: (a) a.m.k: 55 mínútur af spilatíma verða að hafa liðið; eða (b) opinberum úrslitum verður lýst yfir af tilheyrandi íþróttayfirvaldi; annars verða öll úrslit ógild (e. void), nema á þeim mörkuðum sem hafa þegar ráðist skilyrðislaust. Í þessum tilvikum, ef staðan er jöfn, verða öll veðmál á peningalínumarkaðina (e. Moneyline market) ógild.

Ekki með (e. Non-runners), dregið sig í hlé (e. Withdrawals) og brottvísanir (e. Disqualifications)

Fyrir markaði á einstaka leikmenn verða veðmál ógild ef tiltekinn leikmaður byrjar ekki í neinni tilraun (e. down) á meðan leikurinn stendur yfir.

 

Almennar reglur skiptimarkaðarins og markaðsupplýsingarnar (e. Market Information) gilda þegar kemur að öllum flokkum veðmála eða markaða sem ekki er vísað til í sértæku íþróttareglunum. Ef eitthvað misræmi er á milli sértæku íþróttareglnanna og almennra reglna skiptimarkaðarins skulu sértæku íþróttareglurnar vera í forgangi. Ef eitthvað misræmi er á milli markaðsupplýsinganna og annað hvort almennra reglna skiptimarkaðarins eða sértæku íþróttareglnanna, skulu markaðsupplýsingarnar vera í forgangi.

Kíktu hér til að skoða almennu reglur skiptimarkaðarins.