pokercasinosports
pokercasinosports

Mótareglur

Þessar reglur gilda um mót á verkvanginum okkar (e. platform).

Mótareglurnar eins og þær eru skráðar hér eiga að vera viðbót og fylgja almennum skilmálunum og koma ekki í stað þeirra. Ef það gerist að upp kemur misræmi á milli mótareglnanna og almennu skilmálanna skulu almennu skilmálarnir vera í forgangi.

Athugið: Reglur 1.5, 2.4 og 2.5 eiga aðeins við um mót sem notast við blindfé (e. blinds) og/eða gjafarahnapp.

1. Almennt
1.1

Við munum, öllum stundum, taka til greina aðalhagsmuni leiksins og sanngirni skal vera í forgangi við ákvörðunarferli. Óvenjulegar aðstæður geta stundum orðið til þess að ákvarðanir í þágu sanngirni eru teknar fram yfir tæknilegar reglur.

1.2

Öll mót munu byrja á réttum tíma skv. dagskrá eins og tekið er fram í mótaanddyrinu (e. Tournament Lobby). Við áskiljum okkur rétt til að tefja eða fresta móti án nokkurs fyrirvara.

1.3

Mikilvægar upplýsingar um hvert mót, þar á meðal um uppbyggingu blindra, lengd á umferðum og upplýsingar um endurkaup og hlé, er hægt að finna með því að velja Tournament Info-hnappinn í anddyri mótsins (í tölvu) og með því að smella á mótið sjálft í gegnum anddyrið (í snjalltæki). Við áskiljum okkur rétt til að breyta einstökum hlutum hvaða móts sem er án fyrirvara.

1.4

Sætum er úthlutað af handahófi. Breytingar á sætaskipan er ekki leyfð.

1.5

Hnappurinn verður settur við Sæti 1 til að hefja leik.

1.6

Boð og þrjár hækkanir eru leyfðar í Fixed Limit-mótum (mót með föstu takmarki). Það eru engin takmörk á fjölda hækkana sem eru leyfðar í Pot Limit og No Limit-mótum (mót með pottatakmarki og án takmarks).

1.7

Verðlaun verða veitt eins og tekið er fram í mótsanddyrinu, nema þegar samkomulag hefur verið gert (sjá reglu 8.1) eða þegar móti er aflýst (sjá stefnu okkar um aflýsingu móta). Verðlaunauppbyggingin er ekki endanleg fyrr en lokað hefur verið fyrir skráningu og endurkaupa og/eða ábótartímabilum er lokið (e. rebuy/add-on period).

1.8

Til að eiga rétt á endurkaupum í endurkaupsmóti þarftu að eiga fjármunina aðgengilega á reikningnum þínum. Fjármunir sem eru þá stundina í leik í öðrum leikjum, eða eru geymdir í gjaldmiðli sem er annar en gjaldmiðill mótsins eru ekki taldir vera aðgengilegir.

1.9

Síðskráning (e. Late Registratrion): Síðskráning er í boði í flestum mótum. Lengd síðskráningartímabilsins er breytileg, en er þó alltaf sýnd á mótamiðanum í „Quick Seat“ anddyrinu, í upplýsingaspjaldi Tournaments flipans og í fyrirsögninni í mótaanddyrinu fyrir tiltekið mót. Tíminn fyrir síðskráningu er mældur í tíma á klukku (frekar en í leiktíma mótsins). Til dæmis ef mót hefst klukkan 9:00 og er með 90 mínútna síðskráningu þá lokar fyrir skráningu kl. 10:30. Síðskráning lokar snemma ef nógu margir spilarar hafa verið slegnir út til að byrja útborgun verðlauna.

Athugið að spilurum er aðeins leyft að taka þátt í móti einu sinni, nema endurinnkoma (e. re-entry) sé leyfð, eins og tekið er fram í mótsanddyrinu. Einn spilari sem notar marga aðganga til að skrá sig mörgum sinnum í eitt mót ekki leyft og slíkt gæti kallað á refsingar eins og viðvörun, brottvísun úr móti (vinningar að hluta eða fullu gerðir upptækir) og útilokun frá verkvanginum okkar.

1.10

Afskráning: Flest mót leyfa afskráningu þar til tiltekinn tími í mótsanddyri hvers móts rennur upp og hann gæti verið breytilegur frá viðburði til viðburðar. Spilarar sem hafa unnið sætið sitt í gegnum inngöngumót (e. satellite) geta afskráð sig ef viðburðurinn leyfir slíkt og þeir fá þá mótapening (e. T-Money) eða aðgöngumiða í skiptum fyrir sætið sitt. T-Money er hægt að nota til að kaupa sig inn í hin mótin okkar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.

Athugið að sum inngöngumót enda eftir að markmótið (e. target tournament) byrjar þó síðskráning standi yfir. Í þeim tilvikum verða þeir sem vinna inngöngumót settir beint inn í markviðburðinn þegar inngöngumótinu lýkur.

Taktu eftir: Skráningar- og afskráningartímar eru breytilegir og ekki öll mót leyfa afskráningu. Kíktu í mótsanddyrið til að sjá nákvæmar skráningarupplýsingar fyrir hvert mót. Við áskiljum okkur rétt til að breyta skráningar- og afskráningartímum án nokkurs fyrirvara.

Spilarar sem útiloka sjálfa sig á meðan fjöldaga pókermót stendur yfir munu samt sem áður geta klárað hvert það mót sem þegar er í gangi sem þeir eru að spila í fyrir. Þetta þýðir líka að spilarar sem óska eftir sjálfsútilokun frá spilun á svæðunum okkar eftir að hafa komist áfram á Dag 2 í margra daga móti geta samt sem áður spilað í því móti næstu daga á eftir, þrátt fyrir að sjálfsútilokunartímabilið þeirra sé hafið. Spilarar sem velja að spila ekki næstu daga á eftir munu ekki fá neinar bætur í staðinn.

Spilarar sem óska eftir sjálfsútilokun á meðan fasamót (e. Phased Tournament) er í gangi geta ekki klárað næsta fasta mótsins. Athugaðu hvort þú getir spilað í mótinu í heild sinni áður en þú skráir þig til leiks í fyrsta fasa.

2. Útsláttur (e. eliminations)
2.1

Móti lýkur þegar einn spilari hefur safnað öllum spilapeningum sem eru í umferð, eða þegar allir spilarar sem eru eftir fá sömu verðlaunin (t.d. ef mót gefur fimm samskonar verðlaun má móti ljúka þegar það eru fimm spilarar eftir).

2.2

Ef tveir eða fleiri spilarar eru slegnir út í sömu hendi, endar spilari sem var með fleiri spilapeninga við upphaf handarinnar í hærra sæti en spilarinn sem átti færri spilapeninga. Ef allir spilarar byrjuðu höndina með nákvæmlega jafn marga spilapeninga eru þeir allir í sömu sætisröð og öllum verðlaunum sem þessir spilarar gætu átt rétt á verður skipt jafnt á milli þeirra. Á meðan spilað er hönd fyrir hönd (eins og lýst er í reglu 2.3) er litið svo á að tveir eða fleiri spilarar sem eru slegnir út á meðan ein „samhæfð“ hönd stendur yfir, að þeir hafi verið slegnir út á sömu stundu, jafnvel þó að þeir séu á sitt hvoru borðinu. Lokaröðin ræðst með því að bera saman staflastærðir.

2.3

Á tilteknum stigum móts (t.d. þegar verðlaunafé stekkur upp umtalsvert með næsta spilara sem er sleginn út) og þegar það eru fleiri en eitt borð eftir þá gæti mótið verið látið spila hönd fyrir hönd (e. hand for hand). Þetta þýðir að ef eitt borð klárar hönd sína á undan öðru borði, að þá bíður það borð eftir að hin borðin klári líka áður en næsta hönd er gefin.

2.4

Við styðjumst við reglu um „framgangandi hnapp“ (e. forward moving button) í mótum. Samkvæmt þessari reglu fær enginn spilari hnappinn tvisvar sinnum í röð; við lok hverrar handar er hnappurinn færður áfram réttsælis. Afleiðing þessarar reglu getur verið að þegar spilarar eru slegnir úr leik að það gæti gerst að sumir spilarar fái þá að missa af öðrum eða báðum blindum. Þar sem þetta eru í raun tilviljanakenndar uppákomur er enginn spilari sem nýtur góðs af þessu umfram aðra til langs tíma litið.

2.5

Þegar tveir spilarar eru eftir á lokaborði póstar hnappurinn út litla blind og gerir á undan í opnunarumferðinni.

2.6

Eftir því sem spilarar falla úr mótinu „brýtur“ hugbúnaðurinn borð upp til að fylla laus sæti og til að hafa jafnvægi á borðum til að tryggja að öll borð séu með jafnan (eða eins jafnan og hægt er) fjölda virkar spilara á hverju borði. Spilarar af borðum sem eru brotin upp eru settir í ný sæti af handahófi og þó það sé sjaldgæft, gætu þeir þurft að pósta stóra blind strax aftur. Einstakir spilarar sem eru færðir á milli borða til að jafna fjölda verða, þegar það er hægt, færðir í svipaða afstöðu við blindan og þeir voru áður. Þegar nægilega margir spilarar hafa verið slegnir út eru allir spilarar færðir saman á eitt lokaborð (e. final table).

3. Hlé
3.1

Dagskrá fyrir mótahlé má finna í „Tournament Information“ hlutanum í „Structure“ flipanum í mótsanddyrinu. Lengd hlés og tímasetning er misjafnt frá einum viðburði til annars. Við bjóðum upp á tvenns konar hlé:

  1. Mót með samhæfðum hléum taka hlé 55 mínútum yfir heila tímann. Til dæmis, mót sem hefst kl. 7:25 fer í hlé kl. 7:55, 8:55, 9:55 og á hverjum klukkutíma eftir það þar til mótinu lýkur. Það eru líka til mót þar sem samhæft hlé er aðeins tekið á tveggja tíma fresti. Til dæmis í svona móti sem hefst kl. 8:35 þá væri það í hlé kl. 8:55, 10:55 og svo aðra hverja klukkustund eftir það.
    Í endurkaupsmótum (e. rebuy tournaments) af þessu tagi þegar ábót (e. add-on) er leyfð er aukalegt hlé (vanalega þrjár mínútur) við lok endurkaupstímabilsins, til að leyfa kaup á ábótum fyrir þá sem það vilja.
  2. Önnur mót fara í hlé með reglulegu bili á meðan spilun stendur yfir. Til dæmis í móti sem hefst kl. 7:25 þá væri farið í hlé eftir hverja spilaða klukkustund og í þeim tilfellum væri þá farið í fyrsta hlé klukkan 8:25.

Í öllum tilvikum býður mótið eftir að hendur á öllum borðum klárist áður en hlétímabilið hefst. Þetta þýðir að á sumum borðum gæti hléið staðið yfir aðeins lengur en á öðrum borðum.

Athugið að ekki er boðið upp á hlé í öllum mótum (t.d. Hyper-Turbo og í sumum viðburðum með Heads-Up eða Shootout sniði).

4. Sambandsrof eða setið hjá
4.1

Með því að taka þátt í móti samþykkir spilari áhættuna sem fylgt gæti sambandsrofi við netið, vegna vandamála með tengingu á milli tækis síns og netþjóna, tafa eða frystingar eða einhverra annarra vandamála í tækjum eða tengingu spilarans.

    1. Við berum enga ábyrgð á sambandsrofi spilara nema í þeim tilfellum sem vefþjónar hafa hrunið
    2. Þó hver notandi beri ábyrgð á nettengingu sinni þá reynum við að vernda spilara sem missa samband á meðan lokastig móts fyrir raunverulega peninga stendur yfir, með því að gefa framlengdan tíma vegna sambandsrofs (DET - Disconnect Extra Time).
    3. Ef spilari fellur á tíma á meðan hönd stendur yfir, hvort sem hann er tengdur eða ótengdur, verður fyrir því að hönd hans er pakkað (e. folded) ef hann á að gera, eða hann gæti verið tékkaður (e. checked) ef hann þarf ekkert að bregðast við.
    4. Ef spilari hefur ekki náð að tengjast aftur áður en hönd hefst fær hann gefin spil og blindfé/forfé (e. blinds/ante) er póstað. Það er engin regla sem segir að spilari megi ekki velja að sitja hjá; spilari sem gerir slíkt heldur áfram að pósta sjálfkrafa út blindfé og hann fær gefin spil. Tveir eða fleiri spilarar mega ekki gera samkomulag um að sitja hjá samtímis, hvort sem það er á sama borði eða sitt hvoru.
    5. Í Shootout og Heads-Up viðburðum gildir að ef allir spilarar missa sambandið og/eða þeir sitja hjá í mjög margar hendur (vanalega 250 hendur eða meira í raunpeningamótum) mun viðureignin enda og spilarinn með flestu spilapeningana kemst áfram í næstu umferð.

Í hefðbundnum fjölborðamótum er DET aðeins í boði á lokaborðinu. DET-tíminn er eins og hér segir:

  • Fyrsta sögn (e. first action): á milli 60 og 240 sekúndur
  • Önnur sögn: á milli 30 og 120 sekúndur (helmingur tímans í fyrstu sögn)
  • Þriðja sögn: á milli 15 og 60 sekúndur (helmingur tímans í annarri sögn)
  • Fjórða sögn (og aðrar þar á eftir): Enginn aukatími veittur, en þar sem spilarinn er „sitjandi inni“ (e. sitting in) mun hann fá allan þann umhugsunartíma sem fylgir hönd vanalega, til þess að geta gert áður en höndinni er pakkað.

Í Sit & Go-mótum, þar sem spilarar eru færri en 45, er DET í boði þegar mótið er komið niður í þann fjölda spilara sem fá greitt fyrir sætin plús einn. DET-tíminn er eins og hér segir:

  • Fyrsta sögn (e. first action): 120 sekúndur
  • Önnur sögn (e. second action): 60 sekúndur
  • Þriðja sögn (og aðrar þar á eftir): Enginn aukatími veittur, en þar sem spilarinn er „sitjandi inni“ (e. sitting in) mun hann fá allan þann umhugsunartíma sem fylgir hönd vanalega, til þess að geta gert áður en höndinni er pakkað.

Í Heads-up móti er DET í boði allt mótið. DET-tíminn er eins og hér segir:

  • Fyrsta sögn (e. first action): 120 sekúndur
  • Önnur sögn (e. second action): 60 sekúndur
  • Þriðja sögn (og aðrar þar á eftir): Enginn aukatími veittur, en þar sem spilarinn er „sitjandi inni“ (e. sitting in) mun hann fá allan þann umhugsunartíma sem fylgir hönd vanalega, til þess að geta gert áður en höndinni er pakkað.

Um allt hér að ofan gildir að spilari heldur áfram að vera skráður sem „sitting-in“ (sitjandi inni) eftir að hönd hans er pakkað og hann fær þess vegna úthlutuðum fullum umhugsunartíma þegar kemur að honum að gera.

Athugið að í öllum mótum þá er DET núllstillt eftir hvert skipti sem notandinn nær að tengjast aftur. Þannig, að ef spilari er á lokaborðinu í fjölborðaviðburði og hann missir samband og er kominn niður í 30 sekúndur fyrir hverja sögn og nær svo að endurtengjast, að ef hann missir sambandið aftur þá byrjar hann með 240 sekúndur fyrir næstu sögn.

Alltaf ef það gerist að kerfið þarf að bíða eftir spilara sem hefur misst sambandið, þá fer mótaklukkan (sem hækkar blindraloturnar) á pásu/stöðvast þar til DET-tíminn er liðinn hjá spilaranum eða hann nær aftur sambandi.

Taktu eftir: Reglurnar sem eru lýst hér fyrir ofan geta verið misjafnar á milli móta. Ekki er víst að DET sé í boði í öllum mótum; við áskiljum okkur rétt til þess að breyta þessum reglum án þess að gera boð um slíkt fyrir fram.

5. Spjall (e. chat)
5.1

Spilarar, hvort sem þeir eru í miðri hönd eða ekki, mega ekki ræða höndina eða spilin þar til sögnum (e. action) er lokið. Spilurum er áskilið að vernda hina spilarana í mótinu öllum stundum. Það að ræða spilin sem hefur verið hent eða möguleikana í hönd er ekki leyft. Refsingu gæti verið úthlutað vegna umræðna um hendur á meðan spilun er í gangi.

6. Ósiðferðilegur leikur
6.1

Póker er leikur einstaklinga (ekki liða). Allar aðgerðir eða spjall sem ætlað er að hjálpa öðrum spilara er ósiðferðilegt og er bannað. Ósiðferðileg spilun, svo sem mjúk spilun (e. soft play - spila minna framsækið gegn félaga) og spilapeningasturt (e. chip dumping - að tapa viljandi spilapeningum til félaga) gæti orsakað ávítur, þar á meðal upptöku fjármuna af reikningi þess (þeirra) sem brýtur af sér og/eða lokað á aðgang/reikning hans. Við förum reglulega yfir leikspilun til að skima eftir brotum á reglunum okkar og til að tryggja heilindi leikjanna okkar. Það gæti verið nauðsynlegt að halda eftir vinningsfé spilara þar til farið hefur verið yfir gang leiksins.

6.2

Með örfáum undantekningum (lýst hér að neðan) smá spilari aðeins spila með einum aðgangi/reikningi í móti og hann má ekki afhenda sæti sitt öðrum í miðjum viðburði. Brot á þessari reglu gætu kallað á refsingar, þar á meðal áminningu, brottvísun úr móti (og upptöku vinninga að hluta eða öllu) og bann frá spilun á verkvangi okkar.

Dæmi um órefsiverðar undantekningar sem við gefum hér að neðan er ætlað að lýsa dæmum um óskipulagða en alvarlega viðburði sem þú hefur enga stjórn á.

Dæmi um hluti sem eru ekki utan þinnar stjórnar og eru þess vegna bannaðir eru meðal annars:

  1. Að fara að sofa og leyfa einhverjum öðrum að klára mótið.
  2. Að skrá sig í mót og fara svo í ferð sem ákveðin var fyrir fram og biðja því vin um að spila með aðganginum þínum á meðan þú skiptir um stað.
  3. Að ákveða að ljúka móti heima hjá vini og biðja svo vin þinn um að taka við aðganginum þínum á meðan þú kemur þér heim til hans.
  4. Þú og vinur þinn eruð að spila í sama móti. Þið ákveðið að ef hann er sleginn út á undan þér að hann taki við spilun af þínum aðgangi.
  5. Makinn þinn er ekki í bænum um helgina og gefur þér upp lykilorðið sitt. Þú skráir þig inn á báða aðgangana ykkar og spilar af báðum aðgöngum í sama mótinu.
  6. Þú hefur komist áfram á síðustu borðin í móti og einhver býður þér jafngildi peninga fyrir sætið þitt. Þú leyfir hinum spilaranum að skrá sig inn á reikninginn þinn, eða heldur áfram og klárar mótið sjálfur með nákvæmum leiðbeiningum sem hann gefur þér.

Dæmi um hluti sem eru utan þinna áhrifa og eru þess vegna leyfðir, að því gefnu að við getum fengið fullnægjandi sönnun, eru meðal annars:

  1. Þrumuveður slær út rafmagnið í nágrenninu, svo þú hringir í vin til að taka við aðganginum þínum á meðan þú gerir aðrar ráðstafanir.
  2. Barnið þitt veikist snögglega og þú þarft að fara á spítalann, svo þú hringir í vin til að taka við aðganginum þínum.
  3. Þú ert að spila í móti og missir aðgang að netinu heima hjá þér vegna þess að netsöluaðilinn (e. ISP) þinn hefur brugðist. Þú hringir í vin og viðkomandi tekur við á meðan þú gerir aðrar ráðstafanir.
7. Vandræði með netþjón
7.1

Ef það gerist að netþjónar hrynja verður staðan á öllum borðum endursköpuð með því að rúlla til baka höndunum. Spilapeningastaða verður endurstillt í þá upphæð sem var í upphafi handarinnar. Við sérstakar kringumstæður, þegar aflýsa þarf móti vegna hruns eða af öðrum ástæðum, fá spilarar bætur í samræmi við stefnu okkar um aflýsingu móta (sjá neðar).

8. Gerð samkomulaga
8.1

Gerð samkomulaga er heimil í mótum, nema annað sé tekið fram í mótsanddyrinu.

  1. Ef allir spilarar sem enn eru með í móti samþykkja að skipta verðlaunafénu m.v. reiknireglu sem þeir ákveða sjálfir, samþykkjum við slíkt samkomulag og breytum upprunalega útgefinni vinningatöflu til að endurspegla tölurnar sem komist var að samkomulagi um.
  2. Ef allir spilarar sem enn eru eftir vilja gera samkomulag skulu þeir merkja við „Discuss A Deal“ reitinn í „Info“ flipanum í spjallhólfinu við borðið. Þegar allir spilarar hafa merkt í þennan reit er sjálfkrafa gert hlé á borðinu við lok yfirstandandi handar og þjónustuliðið okkar fær tilkynningu. Starfsmaður mætir þá á borðið til að tryggja að auðveldara sé að komast að samkomulagi. Við getum ekki tryggt að stafsmaðurinn komi strax að borðinu þó við gerum allt sem við getum til að komast hjá töfum.
  3. Ekki er hægt að gera samkomulög í öllum mótum, en þegar samkomulög eru í boði verður „Discuss A Deal“ reitur aðgengilegur í „Info“ flipanum á lokaborðinu.
  4. Við tökum ekki þátt í samkomulagsferlinu sjálfu en við komum að því sem málamiðlarar til að tryggja að allir hafi komist að endanlegu samkomulagi áður en við framkvæmum millifærslurnar sem komist var að skv. ofantöldum skilyrðum.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að fara fram á að öll samkomulög skilji einhvern pening eftir „á borðinu“ (utan samkomulags) sem verðlaun fyrir fyrsta sætið. Þessi peningur sem þarf að standa utan samkomulagsins er vanalega ekki meira en 5% af heildarverðlaunapottinum og tryggir að mótið endi á réttmætan hátt. Upphæðin sem farið er fram á að verði eftir til að spila um, ef einhver, er vanalega tiltekin í skilaboðum í mótsanddyrinu.
  6. Spilarar mega samþykkja að skila meiri pening eftir „á borðinu“ fyrir fyrsta sæti eða önnur sæti.
  7. Það er á ábyrgð spilaranna að ákvarða heildarsamkomulagið. Ef engin umsjón er með borðinu af hálfu þjónustuliðsins okkar eru gögn úr spjallglugganum einum ekki nóg til að fullgilda samkomulag. Hinsvegar gætum við fullgilt samkomulag ef það var greinilega sammælst um það af öllum aðilum.
  8. Aðeins spilarar á lokaborðinu geta gert samkomulag um peningana og öll samkomulög verða að ná til allra spilara sem enn eru með.
  9. Ekki er hægt að framfylgja samkomulögum nema í mótum fyrir raunverulega peninga.
  10. Spilarar mega ræða hvaða samkomulag sem þeir óska. Ef spilari óskar eftir því mun starfslið okkar gefa spilurum upp tölur um ICM, fjölda spilapeninga (e. chip count) eða jöfn skipti (e. even split) sem möguleika á samkomulagi.
    • ICM er svokallað „Independent Chip Model“, aðferð sem notuð er til að reikna út eignarhlut (e. equity) hvers spilara í verðlaunapottinum sem stendur eftir miðað við stöðu spilapeninganna (e. chip count), verðlaunasæti sem á eftir að borga út (mínus þann pening sem gæti verið „á borðinu“) og líkindi hvers spilara til að vinna hver verðlaun sem eru eftir í mótinu. Þetta er sjálfkrafa sú aðferð sem spilurum verður boðin fyrst.
    • Staða spilapeninga (e. chip count), er sú aðferð að skipta þeim verðlaunum sem á eftir að greiða út (mínus hvern þann pening sem gæti verið „á borðinu“) eingöngu eftir stöðu spilapeninganna hjá spilurunum.
    • Jöfn skipti (e. even split) deilir þá þeim verðlaunum sem eru eftir (mínus hvern þann pening sem gæti verið „á borðinu“) jafnt á milli allra spilara.

    Allar tölur í samkomulögum sem eru gefnar upp af stafsliði okkar eru ekki lokaúrskurður fyrr en þær hafa örugglega, skýrt og greinilega verið samþykktar af öllum spilurum í spjallboxinu. Spilarar mega ræða aðrar útfærslur á þessum tölum ef þeir vilja; starfslið okkar mun þá endurtaka fyrir alla samkomulagið sem hefur verið samþykkt í spjallboxinu og biðja alla spilara um að staðfesta samkomulagið.

  11. Spilarar þurfa að spila til loka Heads-Up viðureignir á hefðbundinn hátt, óháð því hver andstæðingur þeirra er. Allt „flipp“ (e. flipping), spilapeningasturt (e. chip dumping) eða önnur hegðun sem telst óvenjuleg leikspilun er bönnuð. Brot á þessari reglu geta kallað á refsingar sem gætu, til og með, verið útilokun af verkvangi okkar og upptaka fjármuna. Þessi regla gildir ekki um lokaviðureign í lokaviðureign Heads-Up móts skv. dagskrá.

Gerð samkomulags um stig í stöðutöflu móta (e. Trounament Leader Board) eða stöðutöflustig Sit & Go er bönnuð. Ef það er gert gæti það orsakað upptöku allra veittra stöðutöflustiga hjá þeim spilurum mótsins sem komu að samkomulaginu.

9. Höfuðsfé (e. bounties)
9.1

Í sumum tilgreindum mótum er peningasjóður settur til höfuðs (e. bounty) sumra eða allra þátttakenda í móti. Spilari sem slær út slíkan mótspilara vinnur peningasjóðinn.

Það eru þrenns konar Bounty-mót:

Knockout: Fé er sett til höfuðs (e. bounty) allra spilara. Þú vinnur peningaverðlaun fyrir hvern spilara sem þú slærð út. Það eru líka Progressive Knockout-mót, þar sem sjóðurinn þér til höfuðs hækkar þegar þú slærð út spilara.

Team Pro Bounty: Fé er sett til höfuðs öllum liðsmönnum Team Staruniv Pro sem taka þátt í mótinu.

Fixed Bounty: Fé er sett til höfuðs tiltekins spilara í mótinu.

Höfuðsféð (e. bounty) er veitt þeim spilara sem vinnur „tilheyrandi pott“ þeirrar handar sem um ræðir, sem gæti verið aðalpotturinn eða einn fjölmargra hliðarpotta. „Tilheyrandi pottur“ þýðir potturinn þar sem spilarinn með féð sett sér til höfuðs hefur verið allur inni með síðustu spilapeningana sína.

Til dæmis:

Daniel (100 spilapeningar), Barry (200 spilapeningar), Vanessa (400 spilapeningar) og Jake (1000 spilapeningar), eru að spila hönd í No-Limit móti.

Daniel fer allur inn og Barry, Vanessa og Jake jafna (e. call). Potturinn sem Daniel á rétt á er þekktur sem „aðalpotturinn“. Boð halda áfram „til hliðar“ (e. side betting), í hliðarpotti 1.

Barry fer allur inn og Vanessa og Jake jafna (e. call). Boð halda áfram á milli Vanessu og Jake í hliðarpotti 2.

Vanessa fer öll inn og Jake jafnar (e. call).

Barry sýnir bestu höndina. Hann vinnur hliðarpott 1 og aðalpottinn og slær út Daniel. Hann fær féð sem var til höfuðs Daniel.

Jake sýnir næst bestu höndina og vinnur hliðarpott 2 og slær út Vanessu. Jake fær féð sem var sett til höfuðs Vanessu.

Athugið að þó að Barry hafi verið með bestu höndina í heildina átti hann ekki eins marga spilapeninga og Vanessa og gat þess vegna ekki slegið hana út. Jake átti hinsvegar nógu marga spilapeninga og þess vegna vinnur hann féð sem var til höfuðs Vanessu.

9.2

Í afbrigðum með skiptum potti (e. Split Pot) eins og Omaha Hi/Lo eða Stud Hi/Lo er höfuðsféð alltaf veitt hæstu höndinni. Það er af því að ekki er hægt að slá spilara út með bara lághönd (e. low hand).

9.3

Ef það gerist að tveir spilarar sýna nákvæmlega eins vinningshönd og skipta þess vegna „tilheyrandi potti“ á milli sín (eða í tilvikum af pókerafbrigðum með skiptum potti eins og er lýst í reglu 9,2, er skiptingin gerð á háhluta „tilheyrandi potts“), er hverju því höfuðsfé sem er veitt skipt jafnt á milli sigurvegaranna. Oddasent (e. odd cents) verða veitt spilurum til skiptis sem eru í fremstu stöðunum (e. early positions).

9.4

Ef spilari með fé sér til höfuðs vinnur mót:

  1. Í Knockout-móti fær spilarinn afhent sitt eigið höfuðsfé.
  2. Í Team Pro eða Fixed Bounty-móti þar sem liðsmaður Team Pro eða Fixed Bounty spilari vinnur er höfuðsféð ekki afhent/greitt.
9.5

Ef það er auglýst í móti að fé sé til höfuðs tiltekins spilara en sá spilari skráir sig ekki í mótið er ekkert höfuðsfé greitt fyrir þann spilara.

9.6

Spilarar mega ekki gera samkomulag á milli sín til að slá út tiltekinn spilara til þess að tryggja sér höfuðsfé hans. Slíkt samkomulag flokkast undir samráð og er grundvöllur að brottvísun úr móti eða öðrum refsingum. Til að fá nánari upplýsingar skaltu skoða reglur 6.1 og 6.2 hér fyrir ofan.

10. Aflýsingar

Ef við þurfum að aflýsa móti eða fresta af einhverjum ástæðum reynum að bæta spilurunum okkar það upp á sem sanngjarnastan hátt. Það eru þrenns konar leiðir sem við förum til þess að bæta spilurum okkar slíkt, en það fer svo eftir aðstæðum hverju sinni, tímasetningu aflýsingarinnar hvaða leið við förum nákvæmlega. Ákvörðun um hver þessara leiða sé farin hverju sinni er algjörlega í höndum mótastjórnar.

10.1

Rúllað til baka (e. rollback): Í þessu tilviki „rúllum við til baka“ mótinu eins og það hafi aldrei farið fram. Ef þú varst skráður í mótið færðu innkaup og öll gjöld (þar á meðal endurkaup, viðbætur og knockout-gjald ef það er) endurgreidd. Einnig eru innkaupin endurgreidd á nákvæmlega sama hátt og þú keyptir þig inn upphaflega. Til dæmis ef þú keyptir þig inn í mótið og notaðir T$10 og $15 í peningum, þá fengir þú til baka T$10 og $15 í peningum.

10.2

Rúllað áfram (e. roll forward - Engir spilarar í peningasætum): Ef við sláum af mót og við ákveðum að „rúlla áfram“, áður en spilarar hafa komist í peningasæti, þá endurgreiðum við þeim sem enn eru með í mótinu mótagjöldin (og knockout-gjald ef það á við) og skiptum svo verðlaunapottinum samkvæmt eftirfarandi formúlu: 50% af verðlaunapottinum er skipt jafnt á milli allra spilaranna sem enn eru með í mótinu og 50% af verðlaunapottinum er skipt í hlutfalli við stöðu þeirra í spilapeningum.

10.3

Rúllað áfram (e. roll forward - Spilarar komnir í peningasæti): Þegar móti er aflýst og spilarar hafa þegar náð í peningasæti þá endurgreiðum við hverjum þeim spilara sem eftir er motsgjaldið hans (og höfuðsfé fyrir útslátt (e. knockout) ef það á við) og skiptum upp verðlaunapottinum miðað við eftirfarandi formúlu: hver spilari fær lágmarksverðlaun sem ekki hafa þegar verið veitt á þeim tíma sem móti var hætt og afganginum af verðlaunapottinum er skipt hlutfallslega miðað við spilapeningastöðuna.

Heads-up Sit & Go-mót (HU S&G) eru meðhöndluð á annan hátt, vegna þess að þau eru frekar sérstakt fyrirbæri vegna uppsetningarinnar. Til dæmis ef einn spilari er í sambandi á meðan kannski annar missir sambandið, þá gæti fyrri spilarinn náð að vinna mótið á meðan hinn hefur enn ekki náð sambandi aftur. Þess vegna áskiljum við okkur rétt til að skipta peningum eftir spilapeningastöðunni í öllum HU S&G sem við teljum að hafi orðið fyrir miklum áhrifum vegna sambandsleysis eða ef síðan okkar hefur legið niðri.

10.4

Ef móti með tryggðan verðlaunapott er aflýst munum við einungis endurgreiða heildarupphæð innkaupanna en ekki upphæðina sem var tryggð.

10.5

Ef móti með fast eða Team Pro Bounty (fé til höfuðs Team Pro) er aflýst endurgreiðum við bara venjulega verðlaunapottinn (og knockout-pottinn ef hann er) en ekki fasta eða Team Pro höfuðsféð.

10.6

Mót sem gefa miða, aðgang í inngöngumót eða önnur efnisleg verðlaun til viðbótar við peninga, munu eingöngu innihalda peninga í endurgreiðsluhlutanum. Verðlaun sem ekki eru peningur verða ekki hluti af „rúllað áfram“, eða „rúllað til baka“ jöfnunni.

10.7

Við áskiljum okkur allan rétt til þess að breyta endurgreiðslum vegna aflýsingar eða frestunar móta eða til að breyta þessari stefnu.

11. Heads-Up mót

Í móti sem er Heads-Up keppa spilarar í viðburði með mörgum umferðum gegn röð andstæðinga þar til þeir eru slegnir út, eða sigra síðasta andstæðinginn sem er eftir ósigraður. Nánari upplýsingar um mótauppbygginguna og verðlaunapottinn má finna í mótaanddyrinu.

11.1

Nema mót byrji með nákvæmlega 2, 4, 8, 16, 32, 64 eða 128 spilurum þurfa sumir spilarar í Heads-Up móti að sitja hjá í fyrstu umferð. Aðrir spilarar munu spila aukalega viðureign í fyrstu umferð og mótið spilast niður í 2, 4, 8, 16, 32 eða 64 spilara áður en það færist áfram í næstu umferð. Engir spilarar munu sitja hjá lengur en í fyrstu umferð og allir sem sitja hjá veljast af handahófi úr öllum þátttakendahópnum.

12. Mót með snemmútborgun

Útborgun snemma úr mótum (e. early tournament payout) virkar á sama hátt og hefðbundin mót nema með einni mikilvægri undantekningu:

  • Eftir að mótið kemst á þann stað að byrjað er að borga fyrir sæti geta allir spilarar sem eiga rétt á því fengið strax borgaða lágmarksupphæð í peningum sem er tiltekin í mótauppbyggingu þess móts. 
  • Skilaboð í sprettiglugga birtast þá á borðinu sem segja spilurum sem eiga rétt á því að þeir hafi fengið verðlaunin.
  • Mótið heldur svo áfram eins og vanalega. Eftir að spilari er sleginn úr mótinu (eða vinnur það), verður önnur greiðsla fyrir allan þann mismun sem er á milli lágmarksútborgunar og heildarverðlaunanna sem unnust inn greidd inn á reikning spilarans. Ef spilari hefur ekki unnið sér inn hærri verðlaun verður engin önnur greiðsla.

Með því að gera upphaflegu verðlaunin strax aðgengileg, hafa spilarar fleiri möguleika um hvernig þeir nota verðlaunin sín.