Við erum með leyfið okkar hjá Malta Gaming Authority (MGA - Spilaeftirlitsnefnd Möltu).
Spilaeftirlitsnefndin er eftirlitsstofnunin sem ber ábyrgð á stjórnarháttum allrar spilunar á Möltu, þar á meðal skemmtivélum (e. Amusement Machines), ljósvakamiðlaleikjum (e. Broadcasting Media games), spilahöllum (e. Casinos), atvinnubingóstöðum (e. Commercial Bingo Halls), auglýsingamiðlaleikjum (e. Commercial Communication games), landslottóinu (e. National lottery), óhagnaðardrifnum leikjum (e. Non-Profit games) og fjarspilun (e. Remote Gaming).
Síðan reglugerðin um lottó og aðra spilaleiki (e. Lotteries and Other Gaming Acts), 2001 var sett, hefur MGA komið á framfæri eftirfarandi stefnuyfirlýsingu:
„Að hafa hæfilega stjórn á hinum ýmsu þáttum lottó- og spilaiðnaðarins sem fellur undir nefndina með því að tryggja að spilun sé sanngjörn og gagnsæ gagnvart spilurum, komi í veg fyrir glæpi, spillingu og peningaþvætti og með því að vernda spilara sem eru undir aldri og viðkvæmir.“
Reglugerðin um lottó og aðra spilaleiki (e. Lotteries and Other Games Act), 2001, á að koma öllum spilaumsvifum, að frátöldum spilahöllum sem eru á landi, undir einn heildstæðan lagagerning. Reglugerðin færði MGA víðtækar heimildir og þar með næg tól til þess að koma árangursríkri reglugerð til framkvæmda.
Til að fá nánari upplýsingar skaltu heimsækja vefsíðu MGA https://www.mga.org.mt/.